sunnudagur, desember 24, 2006

Gleðileg jól

Jólakveðjan frá okkur fjölskyldunni er að finna á eftirfarandi slóða:
http://nemendur.khi.is/gudthors/jol2006.htm

Hafið það sem allra best yfir jólin
Guðný

miðvikudagur, desember 20, 2006

Ofurkonan orkulaus.... eða hvað

Þá er ég loksins komin í jólafrí og get farið að undirbúa jólin.
Hingað til hefur ekkert gerst á mínu heimili sem tengist jólunum, svo það er ekki seinna vænna en að byrja - ég hef 4 daga til stefnu.

Þessi önn er búin að vera CRAZY vægast sagt. Ég tók allt of mikið á mig af aukaverkefnum og er verð að viðurkenna að það var ofurkonunni ofviða.

Ég ætla að hafa vit á því (eða reyna það allavega) að segja stundum NEI á næstu önn. Ég hugsa að ég sleppi í það minnsta öllum afleyfingum. Það hlýtur að muna um það.

Það verður nefnilega heill hellingur að gerast á næstu önn. Lokaverkefnið að sjálfsögðu og fullkomunaristinn ég þarf nú að hafa nægan tíma til að dútla í því. En auk þess verð ég í vettvangsnámi I sem ég átti alltaf eftir (vegna þess að ég var nýbúin að fæða þegar ég átti að fara í það) og 2 önnur námskeið.
Svo er það auðvitað fjölskyldan og ég sjálf... hmmm ætli ég læri einhverntíman að hugsa vel um sjálfa mig ?

---

Ég lét verða að því núna í nóvember að skrá mig í Vinstri-Græna. Er búin að melta þetta lengi og dreif mig í því í nóvember til að geta tekið þátt í forvalinu hér í Reykjavík sem var 2.desember.
Í vor væri ég svo til í að taka aðeins þátt í kosningabaráttunni. Þó ekki væri nema með því að dreifa barmmerkjum inn á leikskólana eins og ónefndur sjálfstæðismaður (eða barnið hans) gerði á leikskóla þeirra Kolla og Eydísar. Þið getið rétt ímyndað ykkur svipinn á mér þegar Kolli kom heim með barmmerki frá Sjálfstæðisflokknum !!!

En semsagt, alltaf nóg að gera hjá mér og þegar maður skyldi ætla að það væri eitthvað að róast þá finn ég mér bara eitthvað meira að gera.

Já var ég búin að segja ykkur að ég er að hugsa um að fara í framhaldsnámið á næsta ári :D.

þriðjudagur, desember 12, 2006

we'll call it christmas...

....when the adverts begin

eða svo segir Damien Rice í lagi sínu the animals were gone.

og er það ekki bara sannleikurinn ?
er þetta ekki frekar hátíð peninga og hluta heldur en hátíð ljóss og friðar ?

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Miðlun=nám

Jæja ég kem víst eitthvað til með að blogga aftur á þessari síðu í vetur.
Skólinn er nefnilega byrjaður og á námskeiðinu Miðlun=nám eigum við öll að blogga svolítið um verkefnin okkar. Það verður fínt.
Annars byrjar önnin með trompi. Eydís litla orðin veik og þá verður mér víst lítið úr verki.
En hún er öll að hressast þannig að ég vona að ég geti komið mér af stað við lestur og verkefni á morgun.
Bless í bili

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Gogogic

Jæja haldið þið að mín sé ekki bara búin að ráða sig í hlutastarf.
Ég er að fara að vinna fyrir fyritæki sem heitir Gogogic og er að hluta til í að búa til einfalda tölvuleiki, eða það sem þeir kalla kaffipásuleiki ;)
Þeir eru uppfullir af hugmyndum og það er ég líka svo að það hlýtur að vera gott að við vinnum saman.

Þar sem ég er nú enn í skólanum kem ég til með að vinna frekar lítið til að byrja með, tek að mér einhver lítil verkefni sem ég get jafnvel unnið heima. Svo sjáum við til hvernig þetta þróast.

Mér líst rosalega vel á þetta allt saman, held að þetta verði bæði skemmtilegt og gefandi.

Svo var eitt rosalega fyndið varðandi þetta, en daginn eftir að ég hitti þá í Gogogic hafði Sif vinkona samband við mig og spurði hvort ég væri að fara að vinna með þeim. Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði ekki sagt neinum hvað væri í gangi. Hurru kemur þá ekki í ljós að hún þekkir einn eigandann hann Jónas mjög vel, en Íris vinkona hennar er eiginkona hans. Og þar að auki þekki ég Írisi frá því í gamla gamla gamla daga.
Fyndinn þessi litli heimur sem við búum í :D

miðvikudagur, júní 07, 2006

Sumarið er tíminn...

Lífið er búið að róast aftur hjá mér núna.
Kláraði þessa önn með stæl - fékk 9,5 í meðaleinkunn úr 5 fögum. Er monntnari en allt fyrir vikið. En svona er að vera að gera eitthvað skemmtilegt, þá er þetta ekkert mál.

Byrjaði svo sumarið á því að skemma á mér bakið í garðinum. Er enn aum og léleg. Góða hliðin á málinu er hinsvegar sú að ég dreif mig í ræktina og er búin vera rosa dugleg að mæta. Hef lofað mér að halda því áfram. No matter what !
Þýðir ekki að vera aumingji það sem eftir er ævinnar.

Ég verð alltaf frekar eirðarlaus í athafnaleysi sumarsins. Gæfi mikið fyrir að hafa fullorðið fólki í kringum mig, hlátur, pælingar og krefjandi verkefni.

Í haust breytist allt - þá fer Eydís á leikskólann með Kolla og ég get loksins lært á daginn. Þar að auki verð í í vettvangsnámi bæði á haust- og vor-misseri. Það þýðir að ég fer út, vinn og hitti fólk !

Jibbí- brátt verð ég aftur í fullorðinna tölu !

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Friðbert bloggari

Haldið þið að Friðbert minn sé ekki bara farinn að blogga: http://www.folk.is/fribbi24/
Gaman að því.
Vona bara að hann losni við bögg og einelti sem virðist oft á tíðum fylgja nafnlausum skrifum á netinu, meira að segja á síðum þar sem fólk sem á að vera fullorðið og vel upplýst er að tjá sig. Maður hugsar nú stundum hvernig við getum ætlast til þess af börnunum okkar að þau hagi sér siðsamlega þegar fullorðna fólkið gerir það ekki ?
En ég ætlast nú samt til þess, í það minnsta frá mínum börnum.
Amnesty International - Help us tell their stories